Bændaglíma GA - á sunnudaginn næsta!

Þann 22.september er komið að bændaglímu GA en bændaglíman hefur fyrir löngu sannað sig sem eitt skemmtilegasta mótið sem GA félagar hafa tök á að spila í.

Bændur í ár verða golfkennararnir okkar þau Heiðar Davíð og Stefanía Kristín, það verður ekkert gefið eftir og ætla þau sér bæði sigur á sunnudaginn. Stefanía Kristín er nýkomin heim frá Skotlandi þar sem hún fylgdist með liði Evrópu bera sigur úr býtum í Solheim Cup og punktaði þar hjá sér leikskipulag síns liðs og mætir því full sjálfstrausts inn í sunnudaginn. Heiðar Davíð ætlar svo sannarlega ekki að láta í minni pokann og hefur verið mikið út á velli í vikunni að skrifa niður upplegg síns liðs og lummar hann á ýmsum brögðum sem ættu að fleyta hans liði langt.

Mæting er í golfskálann á Jaðri kl.9:30 á sunnudagsmorgun og er ræst út kl.10:00. Dregið er í lið og munu síðan tveir spila saman á móti öðrum tveimur, betri bolti með forgjöf og spiluð holukeppni. Forgjöf er hæst veitt 36 og því kjörið fyrir alla kylfinga að taka þátt. Gjaldið er 2.000kr á haus og er innifalið í því súpa og með því hjá Vídalín að leik loknum. Skráning er á golf.is, jonheidar@gagolf.is eða í síma 462-2974.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla GA kylfinga til að taka þátt en mótið er gríðarlega skemmtilegt :) Hér má sjá frétt um bændaglímuna í fyrra þar sem Ísland kjöldróg Spán en bændur þar voru Hjörtur Sig (Ísland) og Jónas José Mellado (Spánn)