Aðalvalmynd
Practice - hægt að slá af æfingasvæði, einnig er hægt að velja on course practice þar sem bolti er settur á ákveðin stað á þeim völlum sem eru í boði og hægt að æfa sama höggið aftur og aftur.
Games
Allir helstu leikirnir sem kylfingar þekkja frá Trackman inniaðstöðunni eru í boði á Trackman Range.
Play Courses
Hægt er að spila 12 mismunandi vell í hverjum mánuði og velur Trackman tvo nýja í hverjum mánuði og restin er valin af GA. Hægt að spila einn eða fleiri saman.
Klára holur
Leik lýkur á holu þegar kylfingur er kominn innan við 32 metra frá holu. Notast er við líkindareikning á hvar boltinn er staðsettur og klárað í samræmi við það og því getur skipt máli að vera ekki í glompu eða við tré nálægt flötum.
Æfingasvæði
Þegar slegið er á æfingasvæði er hægt að sjá margar tölur um höggið og slá út á svæði.
On Course Practice
Hægt að velja hvaða holu af þeim völlum sem er í boði og velja sér stað inn á holunni og æfa sama höggið aftur og aftur.
Ball Converter
Ball convert sýnir hversu langt boltinn hefði farið í bestu aðstæðum með góðan golfbolta og er því líkara tölum í raunhöggi en ekki af æfingasvæðinu með æfingaboltum og slegið niður eða upp í vind.