Rástímaskráning á Jaðarsvelli 2026

Sumarið 2026 ætlum við að færa okkur í öðruvísi bókunartíma og rástímafyrirkomulag en hefur verið undanfarin ár.

Þann 27.maí munum við opna fyrir rástímaskráningar frá 1.6 - 31.8 og geta félagsmenn okkar haft allt að fjóra rástíma bókaða á því tímabili. 

  • Hver félagsmaður fær að hafa í heildina fjóra rástíma bókaða í einu
  • Þegar einn rástími er nýttur getur hann strax pantað næsta tíma
  • Bókanir samdægurs teljast ekki inn í þessa fjóra tíma
  • GA félagar geta einungis bókað aðra GA félaga með sér á rástíma - hægt er að bóka gesti með sér í tölvupósti á skrifstofa@gagolf.is
  • Afbóka þarf að lágmarki 90 mínútum fyrir rástíma ef félagsmaður ætlar ekki að nota rástímann
  • Staðfesta þarf rástíma í Mitt Golf appinu fyrir hring eða inn í afgreiðslu á skjá.
  • Ef félagsmaður mætir ekki á skráðan rástíma þá kemur hann í veg fyrir að annar félagsmaður geti nýtt sér rástímann og við því eru viðurlög
    • 1. brot - áminning
    • 2. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 7 daga
    • 3. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 14 daga
    • 4. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 21 dag
    • 5. brot - lokað fyrir rástímaskráningu út golfárið
  • Ekki er leyfilegt að bóka aðra kylfinga með sér í holl nema þeir ætli að mæta í rástímann sjálfir. 
  • Ekki er leyfilegt að "lána" félagsaðild sína með því að skrá sig á rástíma og leyfa öðrum að leika undir sínu nafni.

Frá og með 1. september munum við síðan fara aftur í bókun á fyrri 9 og seinni 9 og þá mun eldra fyrirkomulag taka aftur við sem félagsmenn okkar þekkja.

Með þessu vonumst við til að allir fái jöfn tækifæri til að skrá sig á teig og spila golf í sumar á Jaðarsvelli og að við fækkum þeim tímum sem hafa verið bókaðir án þess að kylfingur ætli sér að nýta hann. 

Hlökkum til golfsumarsins með okkar frábæru félögum.