Trackman Range æfingabásar

Æfingabásar á Klöppum eru nú komnir með TrackMan Range búnað en TMR er byltingakennd radar mælingartækni sem veitir lykilupplýsingar eftir hvert slegið högg. Þegar högg hefur verið slegið eru radarar úti á æfingasvæðinu sem mæla flug boltans á sjálfvirkan hátt. Nákvæm lengd bolta á flugi, hraði og ferill birtist í rauntíma á skjá, á bæði einfaldan og skýran hátt. Í hverjum einasta bás á neðri hæðinni á Klöppum er kominn 21 tommu skjár og greiningarbúnaður og geta þá félagsmenn og gestir séð nákvæma greiningu á golfhöggum sínum eða leikið sína uppáhalds golfvelli á æfingasvæðinu – rétt eins og í hefðbundnum golfhermi. Á efri hæðinni geta kylfingar fylgst með höggunum sínum í trackman appi í símanum.

Jafnframt býður kerfið uppá allskyns æfingar og leiki sem auka líkurnar á markvissum bætingum og ánægju við æfingar.

Tengdu TrackMan appið í símanum þínum við TrackMan Range kerfi Klappa og fylgstu með þróuninni yfir æfingatímabilið.