World Class Open á laugardaginn.

Nú á laugardaginn er loksins komið að fyrsta texas scramble móti sumarsins, World Class Open. 

Mótið hefur verið gríðarlega vinsælt undanfarin ár og hlökkum við mikið til að taka á móti ykkur. 

Spilað verður tveggja manna Texas Scramble, samanlögð leikforgjöf leikmanna deilt með 3 - hámarksleikforgjöf karla er 24 og kvenna 28. 

Verðlaun eru stórglæsileg eins og undanfarin ár og koma þau öll frá World Class og Laugum Spa. 

1.sæti: Árskort í heilsuræktina og gjafakort í Baðstofuna í Laugum fyrir tvo
2.sæti: 9 mánuðir í heilsuræktina og gjafakort í Baðstofuna í Laugum fyrir tvo
3.sæti: 6 mánuðir í heilsuræktina og gjafakort í Baðstofuna í Laugum fyrir tvo
4.sæti: 3 mánuðir í heilsuræktina og gjafakort í Baðstofuna í Laugum fyrir tvo
Nándarverðlaun: 1 mánuður í heilsuræktina og gjafakort í Baðstofuna í Laugum fyrir tvo

Skráning fer fram á golfbox og þarf að hafa samband við skrifstofu GA í síma 462-2974 eða á skrifstofa@gagolf.is til að fá úthlutað rástímum. Ræst er út frá 7:50-13:00. 

https://tourentry.golfbox.dk/?cid=3241848