World Class Open - 5. júní

World Class Open verður haldið hjá okkur þann 5. júní og verður spilað texas scramble keppni. Hámarksforgjöf karla er 24 og 28 hjá konum.

Skráning í mótið fer fram á golfbox eða hér: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=2909484 
Athugið að til að fá rástíma þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@gagolf.is eða hringja í síma 462-2974. Einnig er hægt að hringja í golfskálann í síma 462-2974 og skrá sig í mótið. 

Konur leika af rauðum teigum sem og karlar 70 ára og eldri og drengir 14 ára og yngri. Karlar 15-69 ára leika af gulum teigum.

Verðlaun eru hin glæsilegustu og koma frá World Class en veitt eru verðlaun fyrir efstu fimm sætin auk nándarverðlauna á öllum par3 holum vallarins ásamt teiggjöf frá World Class. 

Mótið hefur á undanförnum árum markað visst upphaf í mótahaldi GA og hefur skráning verið með besta móti.
Við hvetjum kylfinga til að skrá sig í mótið sem fyrst, 5.000kr kostar í mótið.