Vorverking í fullum gangi á Jaðri

Þó svo að sumrið sé aðeins að láta bíða eftir sér þá eru vorverkin komin á fullt hér á Jaðri.

Búið er að planta nokkrum trjám við gömlu flötina á 1.braut og eiga fleiri eftir að bætast við, auk þess sem gömlu glompunum verður lokað og verður svæðið því allt talsvert fallegra en það hefur verið undanfarin ár.

Einnig hefur verið unnið í drenvinnu á 13. braut, hún hefur verið að stríða okkur og vonum við það að með þessu þá lagist hún til muna.  Einnig var búin til glompa fyrir framan vatnið hægra megin á brautinni.

Eins og vonandi flestir vita þá munum við taka tvær nýjar brautir í notkun í sumar, stefnt er að því að taka þær í notkun strax og við opnum völlinn.  Eins og staðan er í dag þá lítur mjög vel út með að það takist.  Við þessa breytingu þá færist æfingasvæðið okkar þar sem gömlu 8. og 9. brautirnar voru.  Þó svo að við verðum ekki með æfingaskýli í sumar þá ætlum við samt sem áður að færa æfingasvæðið.  Búið er að laga til svæðið vestan megin við fjósið og þar verður boltavélin staðsett.  Það verður því stutt að fara til að slá nokkra bolta á æfingasvæðinu í sumar.

Veðrið hefur því miður ekki verið að leika við okkur undanfarna daga og mikill kuldi verið hér norðan heiða.  Þrátt fyrir þessa kuldatíð þá lítur völlurinn vel út og staðan bara nokkuð góð og við því mjög bjartsýnir á sumarið.  Við getum því miður ekki opnað völlinn laugardaginn 16. maí eins og vonir stóðu til.  Nú er stefnt að opnun laugardaginn 23. maí.