Vodafone eflir samstarf sitt við GA

Bjarni Freyr hjá Vodafone og Ágúst hjá GA
Bjarni Freyr hjá Vodafone og Ágúst hjá GA

Nú nýverið var undirritaður samstarfssamningur milli Golfklúbbs Akureyrar og Vodafone.

Vodafone hefur verið dyggur samstarfsaðili Golfklúbbs Akureyrar undanfarin ár og er það okkur mikil ánægja að segja frá því að fyrirtækið hefur ákveðið að styrkja enn betur við starfið hjá okkur hér á Jaðri.

Í sumar mun Vodafone verða annar af aðalstyrktaðilum Arctic open ásamt Flugfélagi Íslands og hjálpa okkur þannig við að efla og stækka þetta glæsilega golfmót.

Einnig mun Vodafone útvega klúbbnum, stangir og flögg á pútt og vippflatirnar við Jaðar.

Það er okkur virkilega mikilvægt að fá slíkan stuðning og hlökkum við mikið til áframhaldandi samstarfs.