Vinur á vin.......

Nú vill nýliðanefnd halda áfram átakinu - VINUR Á VIN  og fá þig félagi góður í lið með sér.

Nýliðanefnd ásamt stjórn klúbbsins hóf síðasta vetur sérstakt átak til að fjölga félögum í klúbbnum, markmiðin voru stór og metnaðarfull og fjölgaði nýliðum um 30 árið 2012 í þessu átaki.

En betur má ef duga skal.................

Nú vill nýliðanefnd halda áfram átakinu - VINUR Á VIN  og fá þig félagi góður í lið með sér.

Fyrirkomulag:

Átakið hefst núna og stendur til 5 júlí 2013.  GA félagar þið finnið einhvern vin, vinnufélaga eða skyldmenni sem ekki eru í GA  og hefur áhuga á að kynna sér golf. Þið skráið ykkur og nýliðann saman á skrifstofu GA eða sendið póst á gagolf@gagolf.is .  þið takið svo þennan einstakling í „fóstur“ með því að kynna fyrir honum það sem GA hefur upp á að bjóða,  svo sem námskeið,  inniaðstöðuna , helstu golfreglur, golfvöllin, og að sjálfsögðu spilið með viðkomandi.

Nýliðagjald í klúbbinn er kr 46.000.-

Happapottur

Fyrir GA félaga til að komast í happa pottinn þarf hans nýliði að vera orðinn félagi í GA fyrir 5. júlí 2013.

Síðan fara nöfn þeirra GA félaga sem koma nýliðum sínum alla leið í pott sem dregið verður úr i mótslok.   Potturinn stækkar eftir fjölda þeirra nýliða sem skráðir verða í GA undir þessu átaki.

100 nýliðar eða fleiri.   10 heppnir GA félagar dregnir út.

3 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2014

3 x  miðar á Arctic Open 2014

4 x miðar á meistaramót GA 2014

50 nýliðar eða fleiri.   7  heppnir GA félagar dregnir út.

2 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2014

2 x miði á Arctic Open 2014

3 x  miðar á meistaramót GA 2014

Færri en 50 nýliðar.  5  heppnir GA félagar dregnir út

1 x 25.000 kr afsláttur af árgjaldi GA fyrir 2014

2 x  miði á Arctic Open 2014

2.  miðar á meistaramót GA 2014

 

 Nýliðanefnd og stjórn GA