Vinnudagur og opnun á sunnudag

Á sunnudaginn næsta, 17.maí, verður vinnudagur upp á Jaðri á milli 10-14. Það er ýmislegt sem þarf að gera svo að við getum opnað völlinn og munu allir geta fundið eitthvað verk við sitt hæfi. 
Dæmi um verkefni:

  • Þrífa stéttar í kringum Golfskála
  • Setja útihúsgögn á pall
  • Bæta salla í stíga og hefla
  • Raka glompur
  • Almenn hreinsun í kringum Golfskála
  • Týna laust rusl á vellinum
  • Grisja greinar og tré

Bónusinn er að þeir sem mæta á vinnudaginn og láta til sín taka fá að spila völlinn eftir það! Það verða 10 holur opnar og munu aðeins þeir kylfingar sem mæta á vinnudaginn fá að spila. Almenn opnun er síðan á mánudaginn 18.maí. 

Súpa, brauð og kaffi verður í boði fyrir duglegu sjálfboðaliðana okkar í hádeginu í skálanum.

Völlurinn kemur vel undan vetri og hlökkum við mikið til sumarsins með okkar frábæru GA félögum. Það er okkur hjá GA gríðarlega mikilvægt að eiga góða sjálfboðaliða og hlökkum við til að hitta sem flesta á sunnudaginn. 

 Í ljósi aðstæðna biðjum við þá duglegu vinnuþjarka sem mæta á sunnudaginn að virða fjarlægartakmarkanir.