Vinnudagur í næstu viku - fréttir af velli

Þá er farið að styttast í opnun Jaðarsvallar og stefnum við á að opna hann þriðjudaginn næsta, 21. maí.  

Vinnudagurinn hefst á mánudaginn næsta, 20. maí, klukkan 10:00 þar sem hin ýmsu verk verða unnin. 

Æfingasvæðið - Klappir

  • Týna bolta uppúr jörðu
  • Týna bolta úr skógi
  • Holufylla með salla í dokkir
  • Snyrta umhverfi Klappa og innandyra

Golfskáli og nærumhverfi

  • Almenn snyrting í kringum golfskála
  • Stilla garðhúsgögnum upp
  • Mála útveggi á skála
  • Mála útveggi turna

Golfvöllur

  • Keyra salla í stíga
  • Setja sand í glompur og raka
  • Standsetja glompur
  • Setja út teigmerki og bekki
  • Taka greinar sem hafa verið sagaðar

Það er nóg af verkefnum fyrir alla og vonumst við til að sjá sem flesta taka þátt í þessu með okkur. Þeir sem mæta á vinnudaginn fá tækifæri til að spila Jaðarsvöll að honum loknum og opnar síðan völlurinn fyrir aðra kylfinga þriðjudaginn 21. maí. Skráning á teigtíma fyrir þriðjudag opnar á golfbox fyrir félagsmenn GA á föstudaginn kemur. Fyrst um sinn verða 14 holur opnar eða allar holur nema 5,6,11 og 14. 

 Völlurinn kom seint undan snjó þetta árið en flatirnar koma engu að síður mjög vel undan þó seinna sé. Enn eru töluverðar frostlyftingar í brautum sem eiga eftir að ganga niður og verður því ekki hægt að opna fyrir bílaumferð á vellinum fyrst um sinn, við munum gera okkar til að flýta fyrir því og hefja völtun og fleira. Það er gaman að sjá hversu vel hefur tekist til að viðhalda flötunum í gegnum veturinn og má sjá glögglega á vellinum og meðfylgjandi myndum hversu mikill munur er á svæðunum. Nú hafa dúkar verið á flötunum undanfarnar tvær vikur sem hefur hjálpað grasinu vel af stað eins og má sjá glögglega.