Vinnudagur í dag kl.16:00

Í dag er vinnudagur á Jaðri frá kl.16:00 og værum við til í að fá sem flesta sjálfboðaliða upp á Jaðar og hjálpa okkur hér á Jaðri.

Það er almenn þrif og lagfæringar sem við förum í í dag og er eins og oft áður, margar hendur vinna létt verk :)

Herlegheitin hefjast kl.16:00 og stefnum við að því að vera til 20:00, þeir sem komast einhverntímann á því tímabili eru meira en velkomnir.

Meðal annars verður farið í:
Almenn þrif í kringum skála
Sallar í stíga
Sumarblóm í potta