Vinnudagur á laugardaginn

Næstkomandi laugardag, þann 10 maí verður vinnudagur hjá okkur á Jaðri.

Hugmyndin er að hittast og gera skálann og hans umhverfi snyrtilegt.  Það sem við ætlum að gera er að bera á pallinn og úthúsgögnin okkar.  Snyrta tré og runna í kringum skálann, Taka aðeins til inn í skálanum og þrífa hann ásamt öðrum skemmtilegum verkefnum.

Vinnudagurinn hefst kl. 10:00 og bjóðum við upp á léttar veitingar.  

Vonandi sjáum við ykkur sem flest.