Vinnudagur á Jaðri á morgun

Á morgun laugardaginn 9. janúar hefjast framkvæmdir í golfskálanum á Jaðri.

Húsasmiðjan gefur okkur nýtt parket á skálann og færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir það. 

Það á því að fara af stað í fyrramálið með þær framkvæmdir og rífa gamla góða teppið af gólfinu.  Þetta er talsverð vinna og því óskum við eftir aðstoð frá ykkur :)

Við viljum því biðja þá sem hafa tök á því að kíkja upp í golfskála kl. 9:00 í fyrramáliðað koma og hjálpa okkur.  Margar hendur vinna létt verk!