Vinnudagur 23. maí og opnun vallar

Þá er farið að styttast í opnun Jaðarsvallar og munum við opna hann á hvítasunnudag, 24. maí.

Vinnudagurinn verður haldinn laugardaginn 23. maí á milli 9-12, í framhaldi af vinnudeginum verður súpa og brauð hjá Jaðar Bistro. Þeir sjálfboðaliðar sem aðstoða okkur á vinnudeginum fá að spila Jaðarsvöll á laugardeginum. Á meðal verkefna á vinnudeginum eru:

Æfingasvæðið - Klappir

  • Tína bolta upp úr jörðu
  • Tína bolta úr skógi
  • Snyrta umhverfi Klappa og innandyra

Golfskáli og nærumhverfi

  • Almenn snyrting í kringum golfskála
  • Stilla garðhúsgögnum upp
  • Hreinsa læk við æfingagrín

Golfvöllur

  • Keyra salla í stíga
  • Setja sand í glompur og raka
  • Standsetja glompur
  • Setja út teigmerki og bekki
  • Taka greinar sem hafa verið sagaðar

Það er nóg af verkefnum fyrir alla og vonumst við til að sjá sem flesta taka þátt í þessu með okkur. Skráning á teigtíma fyrir sunnudag verður opnuð á golfbox fyrir félagsmenn GA á fimmtudag klukkan 15:00. Fyrst um sinn verða allar holur vallarins opnaðar nema 5. og 6. braut og verður rástímaskráning út maí með sama móti og á haustin eða skráð sig sérstaklega á fyrri 9 og seinni 9 og er það gert til að dreifa álagi á völlinn. Hefðbundin rástímaskráning fyrir allan völlinn verður svo í júní, júlí og ágúst. 

Völlurinn lítur vel út, flatir koma vel undan vetri og hafa alla burði til að vera í frábæru standi í sumar. Teigar og brautir eru einnig við góða heilsu en enn vantar fleiri sólardaga þannig að þeir grasfletir verði að fullu grónir. Við biðjum félagsmenn að ganga vel um völlinn og þá sérstaklega brautir fyrst um sinn, færa bolta og stilla þeim upp á grónum svæðum og forðast viðkvæmustu blettina á brautunum. 

Til að allt verði sem best fyrir opnun er okkur mikilvægt að félagsmenn aðstoði okkur á vinnudögunum við allt sem þarf að gera.