Vinnudagar og opnun framundan

Þá er farið að styttast í opnun Jaðarsvallar og stefnum við á að opna hann mánudaginn næsta, 12. maí.

Í ár ætlum við að vera með tvo vinnudaga, fyrri vinnudagur er á fimmtudaginn næsta, 8. maí, frá klukkan 17-20 og endar hann á súpuveislu hjá Jaðar Bistro. Við tökum svo aftur höndum saman á sunnudaginn næsta, 11. maí, frá klukkan 10-14 og endum á kaffiboði hjá Jaðar Bistro. 

Æfingasvæðið - Klappir

  • Tína bolta uppúr jörðu
  • Tína bolta úr skógi
  • Holufylla með salla í dokkir
  • Snyrta umhverfi Klappa og innandyra

Golfskáli og nærumhverfi

  • Almenn snyrting í kringum golfskála
  • Stilla garðhúsgögnum upp

Golfvöllur

  • Keyra salla í stíga
  • Setja sand í glompur og raka
  • Standsetja glompur
  • Setja út teigmerki og bekki
  • Taka greinar sem hafa verið sagaðar

Það er nóg af verkefnum fyrir alla og vonumst við til að sjá sem flesta taka þátt í þessu með okkur. Skráning á teigtíma fyrir mánudag opnar á golfbox fyrir félagsmenn GA á fimmtudaginn kemur. Fyrst um sinn verða allar holur vallarins opnaðar nema 14. braut og verður rástímaskráning með sama móti og á haustin eða skráð sig sérstaklega á fyrri 9 og seinni 9 og er það gert til að dreifa álagi á völlinn.

Völlurinn er að koma mjög vel undan vetri og hefur gott tíðarfar undanfarnar vikur gert gæfumun fyrir völlinn, hann grænkar vel og þornar upp í hitanum sem hefur verið og hlökkum við mikið til að opna og taka á móti félagsmönnum okkar og þeim fjölmörgu gestum sem leggja leið sína á Jaðarsvöll ár hvert. 

Til að allt verði sem best fyrir opnun er okkur mikilvægt að félagsmenn aðstoði okkur á vinnudögunum við allt sem þarf að gera.