Við opnum Jaðarsvöll á sumarflatir

1. flötin lítur vel út.
1. flötin lítur vel út.

Það er mikið gleðiefni að tilkynna opnun á Jaðarsvelli á sumarflatir.   Fyrri níu holurnar verða opnaðar á fimmtudagsmorgun kl. 8:00, en þær seinni á laugardaginn í fyrsta formlega móti sumarsins, Pengs Open.

Ástand flatanna hefur batnað mjög hratt að undanförnu í því frábæra veðri sem við höfum notið og eru þær farnar að lofa mjög góðu. Það er því útlit fyrir gott golfsumar hjá okkur, þrátt fyrir erfiðasta vetur í manna minnum.  Þakklæti fer til allra félaga fyrir mikla þolinmæði að undanförnu.

Sjá nánar á meðfylgjandi myndum.

Tengt efni:

18. flöt í júní 2012
  18. flotin hefur tekið hratt við sér.