VerslunarmannahelgarBomban verður Icewear Bomban

Golfklúbbur Akureyrar og Icewear skrifuðu nýlega undir samstarfssamning til næstu fimm ára. 

Icewear verður aðalstyrktaraðili Verslunarmannahelgarbombunnar sem er eitt af stærri golfmótum GA ár hvert.  Mótið mun því bera nafn Icewear næstu árin og verður því kallað Icewear Bomban.

Það verða því glæsilegir vinningar í boði Icewear og hvetjum við kylfinga til að skella sér norður um verslunarmannahelgina og taka þátt í stórskemmtilegu golfmóti.

Er það okkar markmið að efla og stækka þetta mót ennfrekar og fögnum við því að fá inn eins öflugan samstarfsaðila líkt og Icewear.