Frá og með miðvikudeginum næsta, 22. júlí til sunnudagsins 2. ágúst verður Jaðarsvelli snúið við.
Ræsing er því frá 10. teig og munu þeir kylfingar sem eiga bókaða rástíma því byrja á 10. teig og spila fyrst holur 10 - 18 og síðan holur 1 - 9.
Er þetta gert til að létta álagi á fyrri níu holunum þar sem sumir kylfingar spila einungis níu holur af golfi.
Starfsfólk GA.