Landsliðshópur GSÍ æfði á Akureyri

Mynd:golf.is
Mynd:golf.is

Landsliðshópur GSÍ kom saman á Akureyri um síðustu helgi og æfði í inniaðstöðu okkar undir handleiðslu Ólafs Loftssonar, afreksstjóra GSÍ. 

Kylfingar æfðu frá morgni til kvölds á laugardegi og sunnudegi og gat nýtt sér okkar glæsilegu aðstöðu bæði uppi og niðri. Mikil ánægja var með helgina hjá landsliðsfólki og Ólafi og er hægt að lesa nánar um það hér.

Fjórir kylfingar frá Golfklúbbi Akureyrar tóku þátt í æfingahelginni en það eru þau Arnar Freyr Viðarsson, Ágúst Már Þorvaldsson, Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir. Við hjá Golfklúbbi Akureyrar erum stolt af því að geta boðið landsliðinu upp á svona glæsilega æfingaaðstöðu og einnig erum við stolt af okkar krökkum sem hafa lagt mikið á sig til að komast í landsliðshóp GSÍ.