Vel heppnað styrktarmót körfuknattleiksdeildar Þórs

Á laugaradaginn síðasta var styrktarmót körfuknattleiksdeildar Þórs haldið á Jaðarsvelli og voru 130 keppendur skráðir til leiks.

Mikið var um dýrðir á vellinum og heppnaðist mótið stórglæsilega. 

1.sæti: Gauti Þór Reynisson og Hrafnkell Reynisson -15
2.sæti: Arnar Oddsson og Óli Magnússon -14 
3.sæti: Elvar Örn Hermannsson og Ísak Kristinn Harðarson -13

Stórglæsilegt lokahóf var síðan haldið á Jaðri og fögnuðu kylfingar lengi og vel saman eftir mótið og nutu samveru hvors annars. Fjöldinn allur af útdráttarverðlaunum voru veitt um kvöldið og gleði og gaman á Jaðri.