Vel heppnað Opnunarmót Jaðarsvallar í gær

Það var sannkölluð rjómablíða á Jaðarsvelli í gær þegar Opnunarmótið fór fram og voru 93 keppendur sælir með skráningu sína og spenntir fyrir fyrsta móti sumarsins á vellinum.

Fyrsta holl fór af stað 8:50 um morguninn og það síðasta 10 mínútur yfir eitt og má segja að aðstæður til golfiðkunar hafi verið eins og best verður á kosið.

Kylfingar spiluðu gott golf og var skor í höggleik og punktakeppni stórglæsilegt.

Hér má sjá úrslit og verðlaunahafa í mótinu, verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í afgreiðslu GA frá og með mánudeginum 8. júní.

Nándarverðlaun:
4.hola: Brynjólfur Jóhannsson 2,99m
8.hola: Unnar Þór Axelsson 3,32m
14.hola: Örvar Samúelsson 2,24m
18.hola: Hlynur Jónsson 78,5cm

Höggleikur án fgj:
1.sæti: Víðir Steinar Tómasson -5
2.sæti: Valur Snær Guðmundsson -4
3.sæti: Óskar Páll Valsson -1

Punktakeppni m/fgj:
1.sæti: Benedikt Gunnarsson +8 punktar
2.sæti: Stefán Bjarni Gunnlaugsson +7 punktar
3.sæti: Haukur Gunnarsson +6 punktar

Við þökkum kylfingum kærlega fyrir skemmtilegt mót.