Lokahóf barna- og unglingastarfs GA var haldið á Jaðri í gær og voru rétt um 90 krakkar mættir til að gera upp sumarið og fagna flottum árangri sem náðist í sumar.
Lokahófinu var þrískipt þar sem 5. og 6. flokkur mættu 16:00-17:00, 7. og 8. flokkur 17:00-18:00 og loks elstu krakkarnir eftir það. Þjálfarar okkar voru búnir að setja upp stöðvar og leiki og fengu allir krakkarnir síðan pizzu.
Veittar voru viðurkenningar fyrir mestu forgjafalækkun í ákveðnum forgjafaflokkum og fengu eftirtaldir kylfingar þau verðlaun:
Forgjöf 54-36,5 - Anton Ingólfur Gestsson, fór úr 54 í 30,6 í forgjöf í sumar
Forgjöf 36,4-25,5 - Elías Orri Heiðarsson fór úr 27,1 í 16,8 í forgjöf í sumar
Forgjöf 25,4-15,4 - Embla Sigrún Arnsteinsdóttir fór úr 22,6 í 11 í forgjöf í sumar
Forgjöf 15,3-6,5 - Bjarki Þór Elíasson fór úr 13,4 í 9,6 í forgjöf í sumar
Forgjöf 6,4 og minna - Barri Björgvinsson fór úr 5,5 í +1,7 í forgjöf í sumar
Við óskum þessum flottu efnilegu kylfingum okkar til hamingju með viðurkenninguna. Barna- og unglingastarfið okkar er í vetrarfríi en hefja síðan æfingar aftur 2. nóvember. Æfingatöflu GA má finna hér og hvetjum við áhugasama kylfinga til að koma og prufa golf hjá okkur í Golfklúbbi Akureyrar.




