Veigar og Skúli meðal keppenda á European Young Masters

Þeir Veigar Heiðarsson og Skúli Gunnar Ágústsson frá GA eru meðal keppenda á European Young Masters mótinu sem byrjar í dag en mótið fer fram í Finnlandi á Cooke vellinum í Vierumäki. Strákarnir leika á öftustu teigum þar sem völlurinn er 6411 metrara og er hann par 72. Með strákunum í íslenska liðinu eru þær Perla Sól Guðbrandsdóttir og Helga Signý Pálsdóttir en þær eru báðar úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

Spilaðar eru samtals 54 holur eða 18 holur á dag og er mótið bæði einstaklingskeppni og liðakeppni þar sem þrjú bestu skorin hjá hverju landi telja en í ár eru 27 lönd sem taka þátt.

Hér má fylgjast með stöðunni:

https://www.ega-golf.ch/content/european-young-masters