ETSU, skólinn sem Veigar stundar nám við, tekur þessa dagana þátt í Bank of Tennessee-mótinu. Mótið hófst í gær og eru leiknir þrír hringir samtals.
Eftir fyrsta keppnisdag er ETSU á samtals átta höggum undir pari og situr í öðru sæti ásamt öðru liði. Veigar átti afar góðan hring í gær og er jafn í 7. sæti einstaklingskeppninnar á fjórum höggum undir pari. Hann lék hringinn á 68 höggum eftir að hafa skilað fimm fuglum og aðeins einum skolla.
Nýverið var birtur styrkleikalisti NCAA í háskólagolfi Bandaríkjanna eftir fyrstu mót vetrarins. Þar var ETSU raðað í 8. sæti yfir sterkustu golfskóla landsins, sem endurspeglar afar öfluga byrjun liðsins á skólaárinu. Veigar hefur einnig farið vel af stað og er sem stendur í 46. sæti á styrkleikalista einstaklinga.
Hægt er að fylgjast með stöðunni í mótinu hér. Við óskum Veigari og liðsfélögum hans góðs gengis í lokaumferðunum.