Veigar Heiðarsson er þessa dagana staddur á Írlandi þar sem hann tekur þátt í South of Ireland Men's Amateur Open Championship sem er spilaður á Lahinch vellinum sem félagsmenn okkar þekkja ef til vill úr Trackman hermunum.
Mótið er gríðarlega sterkt og er búið að vera haldið samfleytt síðan 1895 og hafa mörg þekkt nöfn tekið þátt og unnið mótið, til að mynda vann Graeme McDowell mótið árið 2000 og Darren Clarke árið 1990.
Spilaður er höggleikur í dag og á morgun og tekur svo 64 manna úrslit í holukeppni eftir það. Veigar fer af stað klukkan 14:40 í dag og er hægt að fylgjast með gangi mála hér: https://www.golfgenius.com/pages/12364449206218291709
Við óskum Veigari góðs gengis í mótinu.