Veigar jafn í 7. sæti á Bank of Tennessee mótinu

Veigar lauk keppni á 11 höggum undir pari og deildi 7. sæti á Bank of Tennessee mótinu sem lauk í gærkvöldi. Hann lék undir pari á öllum þremur hringjunum og sýndi enn á ný stöðugan og öruggan leik, líkt og á síðustu mótum.

Lið hans, ETSU, hafnaði í 4. sæti á samtals 29 höggum undir pari, en fjögur bestu skor hvers keppnisdags telja til liðakeppninnar. Sigurvegari mótsins var VCU á 42 höggum undir pari.

Veigar stóð efstur meðal liðsfélaga sinna og hélt áfram því góða gengi sem hann hefur sýnt í háskólagolfinu á þessu tímabili.

Hér má sjá lokaniðurstöðuna í mótinu