Veigar í 34. sæti á sterku háskólamóti

Veigar Heiðarsson og lið hans East Tennessee State háskólinn tók þátt í sterku háskólamóti dagana 16.-18. mars síðastliðið en mótið var það sterkasta sem Veigar hefur tekið þátt í á þessu skólaári. 

Veigar hafði átt mjög gott mót á undan þessu þar sem hann endaði í 19. sæti í Louisiana Classics mótinu á þremur höggum undir pari.

Það er skemmst frá því að segja að Veigar átti hörku flott mót og endaði jafn í 34. sæti á einu höggi yfir pari í heildina. Hann lék hringina sína á 72-71-71 og varð skólinn hans í 11. sæti í liðakeppni mótsins. Einn annars Íslendingur tók þátt í mótinu, Gunnlaugur Árni, og endaði hann jafn í 65. sæti á sex höggum yfir pari.

Veigar er búinn að taka þátt í öllum mótum með skólanum sínum í vetur og búinn að eiga tvö mjög góð mót í röð. Við hlökkum til að fá hann heim í sumar og fylgjast áfram með honum vaxa sem kylfingur. 

Hægt er að lesa nánar um Pauma Valley Invitational hér í frétt Golfsambandsins.