Veigar að keppa í Dallas

Veigar Heiðarsson og félagar í ETSU skólanum eru þessa dagana á Trinity Forest Invitational í Dallas, Texas.

Mótið hófst á sunnudaginn og fer lokahringurinn fram í dag, 6. október.

Eftir tvo daga var ETSU skólinn í 2. sæti á samtals 19 höggum undir pari og er Veigar jafn í 25. sæti í einstaklingskeppninni á pari.

Fyrri hringinn lék hann á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Veigar fékk sex fugla og þrjá skolla á hringnum. Dagur tvö var ögn erfiðari en þar lék hann á 75 höggum með fjóra fugla, 5 skolla og einn tvöfaldan skolla.

Lokahringurinn fer fram í dag og er hægt að fylgjast með stöðunni hér