Vallareftirlit á Jaðarsvelli

Kæru GA félagar og gestir

Í góða veðrinu á kvöldin hefur komið fyrir að kylfingir fari af stað á Jaðarsvelli án þess að skrá sig á rástíma sem veldur ruglingi á meðal þeirra sem eru skráðir og eins hjá starfsfólki okkar sem sinnir vallareftirliti og talningu á spiluðum hringjum á Jaðarsvelli. Við viljum því biðja alla þá kylfinga sem spila Jaðarsvöll að skrá sig í golfbox á rástíma. Það auðveldar öllum notendum Jaðarsvallar til muna.

Eins er vallareftirlit farið í gang þar sem starfsfólk GA fylgist með að kylfingar hafi gert grein fyrir sér og séu þá virkir félagsmenn GA eða greiði vallargjald. Viljum við því biðja kylfinga að taka vel á móti starfsfólki GA sem er að sinna vallareftirliti.

Þá eru pokamerkin komin inn á skrifstofu GA og biðjum við ykkur kæru GA félagar að sækja þau áður en þið hefjið leik til að auðvelda starfsfólki okkar starf sitt í vallareftirlitinu.