Úrslit úr Styrktarmóti barna og unglinga GA

Styrktarmót barna og unglinga GA fór fram í dag með mikilli pomp og prakt í svokallaðri norðanblíðu. Það tóku 74 keppendur þátt í þessu flotta móti og var mikil gleði meðal kylfinga úti á velli. Glæsilegir taktar sáust hjá kylfingum og var það hann Kjartan Fossberg sem sigraði höggleikinn á 80 höggum, Þórdís Ingvadóttir sigraði punktakeppnina með hvorki meira né minna en 41 punkt, glæsileg lækkun hjá henni.

Við í GA erum afar þakklát fyrir þennan stuðning til barna og unglinga klúbbsins og þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna. Hér að neðan má sjá þá sem lentu í verðlaunasæti og mega þau endilega sækja verðlaun sín á skrifstofu GA frá og með mánudeginum 17. júní.

Punktakeppni

  1. Sigurjóna Þórdís Ingvadóttir – 41 punktur
  2. Kara Líf Antonsdóttir – 40 punktar
  3. Þorsteinn Ingi Konráðsson – 39 punktar

Höggleikur

  1. Kjartan Fossberg Sigurðsson – 80 högg (betri á seinni)
  2. Eiður Stefánsson – 80 högg
  3. Héðinn Gunnarsson – 81 högg (betri á síðustu 6)

5 næstu högg á 18. Braut

  1. Birgitta Guðmundsdóttir – 2.25 metrar
  2. Jason James Wright – 7.27 metrar
  3. Rúnar Jónsson – 7.94 metrar
  4. Þórir Sigmundsson – 8.01 metrar
  5. Ágústa Sigurðardóttir – 9.46 metrar

Önnur verðlaun

9. Sæti – Jóhannes Páll Jónsson

23. Sæti – Óskar Jensson

38. Sæti – Þorvaldur Kristinn Hilmarsson

45. Sæti – Gísli Óskarsson

55. Sæti – Aron Máni Egilsson Heinesen

60. Sæti – Gunnar Heimir Ragnarsson

Næst neðsta sæti – Axel Árnason

Neðsta sæti – Tryggvi Hallgrímsson