Úrslit úr BYKO Open 2013

Opna BYKO mótið var haldið í gær.

Veðurguðirnir hafa leikið vel við alla kylfinga undanfarið hér á Akureyri bæði í leik og keppni. Veðurblíða var í BYKO mótinu í gær þó blés aðeins á keppendur.

Úrslit voru eftirfarandi

Ólafur Auðunn Gylfason lenti í 1. sæti með 40 punkta - fékk fyrir það 50 þús kr úttekt hjá BYKO, ELKO eða Intersport.

Rúnar Antonsson var í 2. sæti, hann var með 39 punkta fékk fyrir það 30 þús kr úttekt hjá BYKO, ELKO eða Intersport.

Helgi Bragason varð í 3 sæti hann var einnig með 39 punkta, fékk hann fyrir það 20 þús kr úttekt hjá BYKO, ELKO eða Intersport

Veitt voru verðlaun fyrir næst holu á par 3 brautum

4. braut, Jón Heiðar Sigurðsson, á 6. braut Andri Geir Viðarsson, á 11. braut Þórarinn Valur Árnason og á 18. braut Bjarni Freyr Guðmundsson.

Lengsta teighögg átti Jason Wright á 15 braut

Vill Golfklúbburinn þakka Byko fyrir stuðninginn og kylfingum fyrir þátttökuna.