Úrslit í Bautamótinu

Fyrr í dag fór fram hið árlega Bautamót. Ræst var út af 1. og 10. teig frá 8:00 til 10:20, en alls voru 56 kylfingar skráðir til leiks. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig, en frekar napurt var í morgun en það hlýnaði með deginum. Að móti loknu bauð Bautinn svo þátttakendum upp á flott hlaðborð með allskonar tertum og réttum. Úrslit mótsins voru eftirfarandi:

 

1. sæti með forgjöf - Valdimar Freysson - 39 punktar - Bautameistari 2013

2. sæti með forgjöf – Auðunn Aðalsteinn - 37 punktar

3. sæti með forgjöf – Allan Hwee Peng - 36 punktar

 

1. sæti án forgjafar – Fylkir Þór Guðmundsson - 33 punktar

2. sæti án forgjafar – Björn Auðunn Ólafsson - 28 punktar

3. sæti án forgjafar – Allan Hwee Peng - 27 punktar

 

Kvennameistari Bautans 2013:

Linda Hrönn Benediktsdóttir með 34 punkta


Næst holu á 4. braut - Ólafur Gylfason - 3.15 m

Næst holu á 6. braut  - Fylkir Þór Guðmundsson - 4.88 m

Næst holu á 11. braut - Björn Auðunn Ólafsson - 2.70 m

Næst holu á 14. braut - Allan Hwee Peng - 2.45 m

Næst holu á 18. braut  - Björn Auðunn Ólafsson  -1.72 m