Úrslit Hatta- & pilsamót

Föngulegur hópur kvenna
Föngulegur hópur kvenna
Metþátttaka var í mótinu núna.

Helstu úrslit voru eftirfarandi Leanne Carol í 1. sæti, Unnur Elva 2.sæti, Guðlaug María 3. sæti, 4. - 6. sæti Svandís, Þórunn Bergs og Jakobína Reynis. Næst holu á 18. braut var Unnur Elva og lengsta teighögg átti Leanne.

Mikið var um tilkomumikla búninga og hatta og mikil gleði ríkti fram eftir kvöldi - Að móti loknu var snæddur kvöldverður í golfskálanum og verðlaunaafhending að honum loknum - Verðlaunin voru öll gefin af fyrirtækjum og listakonum héðan frá Akureyri og Dalvík, var þeim öllum þakkað með miklu lófataki.