Úrslit GA kylfinga úr Íslandsmótinu í golfi

Við í GA áttum 13 kylfinga í Íslandsmótinu í golfi sem kláraðist rétt í þessu. Öll stóðu þau sig glæsilega og áttum við 2 kylfinga á verðlaunapalli. Það voru þeir Lárus Ingi, klúbbmeistari, og Tumi Hrafn Kúld sem enduðu jafnir í 3. sæti á 1 höggi undir pari í mótinu. Geggjaðir strákarnir!

Á eftir þeim komu Eyþór Hrafnar og Örvar Samúelsson á +8 og +10 sem er gífurleg bæting hjá þeim báðum síðan í meistaramóti GA. Mikael Máni, Ævarr Freyr og Skúli Gunnar Ágústsson voru allir í flottum málum og enduðu mótið á +17, +20 og +21. Þetta var fyrsta Íslandsmót Skúla Gunnars og ljóst að framtíðin er björt hjá þeim unga og efnilega kylfingi. 

Í kvennaflokknum spilaði Andrea Ýr best allra og kláraði mótið jöfn í 6. sæti, sem er glæsilegur árangur. Lítið vantaði hjá henni en einungis 1 högg vantaði í 3. sætið og ljóst að landsliðskonan okkar er stutt frá gullinu. 

Hér má sjá öll úrslit GA kylfinga:

Karlar:

T3 Lárus Ingi Antonsson 75-68-73-67
T3 Tumi Hrafn Kúld 70-72-70-71
T17 Eyþór Hrafnar Ketilsson 74-74-70-74
22 Örvar Samúelsson 77-73-70-74
T34 Mikael Máni Sigurðsson 74-76-72-79
40 Ævarr Freyr Birgisson 80-73-76-75
T41 Skúli Gunnar Ágústsson 79-74-79-73
MC Víðir Steinar Tómasson 76-87
MC Óskar Páll Valsson 83-81
MC Björgvin Þorsteinsson 84-84

 

Konur:

T6 Andrea Ýr Ásmundsdóttir 77-76-75-77
MC Stefanía Kristín Valgeirsdóttir 82-84
MC Auður Bergrún Snorradóttir 89-87