Umgengni á Jaðarsvelli

Ágætu kylfingar

Við hvetjum ykkur eindregið til að halda áfram að ganga vel um Jaðarsvöll þó svo haustið sé farið að birtast. Mikið hefur vantað upp á að kylfingar geri við bolta- og kylfuför, en þau myndast auðveldlega í rakanum og bleytunni sem fylgir haustinu.

Eins minnum við á kylfingar þurfa að skrá sig á teig á golf.is eins og venja er. Þó umferð sé minni á haustin er mikilvægi góðrar skráningar ekki minni.

Hjálpumst að halda vellinum eins góðum og mögulegt er áður en veturkonungur tekur við.

Með kveðju

Starfsfólk GA