Tveir golfhermar af fullkomnustu gerð í boði í Golfhöllinni

Nú er nýji golfhermirinn kominn í notkun og nú geta félagar í GA valið á milli tveggja golfherma.

Líkt og fyrr þá er hægt að bóka sig í golfhermana á heimasíðunni.  Í valflipanum sem kemur upp þá er Trackman 1 eldri hermirinn og Trackman 2 nýji hermirinn.

Hvetjum við kylfinga til að nýta sér þessa glæsilegu aðstöðu sem við höfum í Golfhöllinni.