Tæplega 20% aukning á spiluðum hringjum hjá GA félögum

Nú á næstu dögum munum við birta smá tölfræði yfir spilaða hringi á Jaðarsvelli og fleira frá árinu 2020. 

Ljóst er að klúbburinn er á mikilli uppleið og stefnum við áfram hærra.

Í sumar voru GA félagar ábyrgir fyrir 18.022 hringjum sem spilaðir voru á Jaðarsvelli (20.129 með mótum) og hefur aldrei verið meira frá því að skipulagðar talningar hófust 2014. Við teljum þó ljóst að þessir hringir hafi verið töluvert fleiri í sumar en stundum gleymist að skrá sig á teigtíma. Við höldum áfram að impra á því við klúbbfélaga okkar að skrá sig á teig til að gera tölfræði okkar markvissari og skemmtilegri. Var þetta aukning um tæplega 3.000 hringi (að undanskildum mótum) frá metárinu 2019 eða 19,3% aukning. 

Spilaðir hringir í mótum hjá okkur voru 3.658 hringir eða rétt tæplega 200 færri en árið 2019. Heilt yfir var þátttaka í mótum í sumar góð og jókst á milli ára en það voru ívið færri mót í ár en undanfarin ár og meira um opinn völl. GA félagar spiluðu 2.107 hringi í mótum og aðrir 1.551 hring.

Við munum birta frekari tölfræði á þessum hringjum ásamt upplýsingum um félagatal okkar á næstu dögum.

Jón Heiðar.

Skráðir rástímar hjá GA félögum (ekki með mótshringjum).