Þvílík sveitakeppni að baki!

Geggjuð sveitakeppni að baki!

Íslandsmót golfklúbba 2026 var haldið á Flúðum í 14 ára og yngri og á Akranesi í 15-18 ára. ⛳

14 ára og yngri sveitin okkar samanstóð af:
Kristófer Áki Aðalsteinsson
Bjarki Þór Elíasson
Sesar Blær Gautason
Jóakim Elvin Sigvaldason
Andri Mikael Steindórsson

U16 KK sveitin okkar samanstóð af:
Ágúst Már Þorvaldsson
Arnar Freyr Viðarsson
Egill Örn Jónsson
Baldur Sam Harley
Barri Björgvinsson

U18 KK sveitin okkar samanstóð af:
Patrekur Máni Ævarsson
Hafsteinn Thor Guðmundsson
Finnur Bessi Sigurðsson
Maron Björgvinsson

U18 KVK sveitin okkar samanstóð af:
Bryndís Eva Ágústsdóttir
Lilja Maren Jónsdóttir
Björk Hannesdóttir
Ragnheiður Svava Björnsdóttir
Embla Sigrún Arnsteinsdóttir

14 ára og yngri sveitin stóð sig mjög vel og nældi sér í 3. sæti á Flúðum. 🥉

U16 strákarnir sönnuðu annað árið í röð að þeir eru bestir á landinu í sínum aldursflokki! Þeir unnu alla leikina sína 3-0!
Íslandsmeistarar annað árið í röð! 🏆🏆

U18 strákarnir stóðu sig hrikalega vel og sýndu svo sannarlega hvað þeir eru efnilegir! Þeir nældu sér í annað sæti á Akranesi 🥈

U18 stelpurnar eru íslandsmeistarar! Eftir erfiðan leik gegn GK sem fór 2/1 fyrir GA eru stelpurnar íslandsmeistarar! 🏆

Við hjá Golfklúbbi Akureyrar erum óendanlega stollt af ungu kylfingunum okkar, þau hafa öll lagt sig 110% fram í æfingum og það hefur heldur betur skilað sér. Æfingin skapar meistarann. 💪

Við óskum öllum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur! 🎖️

Við erum stollt af því að vera GA-ingar. Höldum áfram að sýna hvað við getum! 🎖️

Áfram GA!