Þriðjudagsmótaröð FJ og Greifans

Minnum kylfinga á að Þriðjudagsmótaröð FJ og Greifans heldur áfram á morgun, 6. júní. Kostar aðeins 1.000 krónur í mótið.

Alls eru 13 mót og 8 bestu hringirnir telja! Það má spila hvenær sem er yfir daginn, lágmark 2 saman í holli. Við tökum frá holl frá 17-17:30 og fer skráning fram í þau í síma 462-2974 eða á skrifstofa@gagolf.is