Þorsteinn Hallgrímsson með kynningu á Jaðri

HVAÐ ER AÐ VERA KYLFINGUR ?
Það hefur orðið alger sprenging í vinsældum golf íþróttarinnar hér á landi og við sjáum það á okkar völlum að ansi margir kylfingar eiga margt ólært þegar kemur að almennri umgengni á okkar völlum. Við ætlum að vera með fræðslu fyrir okkar félagsmenn sem ber heitið "Hvað er að vera kylfingur".
 
Þar förum við yfir hvernig við mælum með að umgengni sé á okkar golfvallasvæðum.
• Skráning í rástíma.
• Staðfesta komu á golfvöllinn.
• Hvernig ber ég mig að út á golfvelli,
• Hvað er gott að hafa í huga þegar ég spila golf!
• Hvernig held ég leikhraða.
• Umgengi um golfvöllinn.
• Mitt par – telja punkta.
 
Þorsteinn Hallgrímsson fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi mun leiða okkur í gegnum þetta og fara yfir það hvernig við berum okkur að. Við hvetjum að sjálfsögðu alla nýliða og aðra félagsmenn til að mæta á kynningu og læra undirstöðuatriðin í því hvað felst í því að vera kylfingur. 
Sjáumst á Jaðri á morgun, þriðjudaginn 14. júlí, klukkan 17:30.