Undanfarnar vikur hafa framboð til sveitarstjórnarkosninga á Akureyri heimsótt Golfklúbb Akureyrar og kynnt sér starfsemi félagsins. Þar fengu fulltrúar flokkanna að sjá afrakstur þeirrar öflugu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á Jaðri á síðustu árum, þar sem starfsemi klúbbsins hefur verið sameinuð á einum stað með afar hagkvæmum hætti.
Þessi uppbygging hefði ekki orðið að veruleika nema fyrir farsælt samstarf við Akureyrarbæ, dyggan stuðning sjálfboðaliða og velunnara félagsins og mikla samstöðu innan klúbbsins.

Golfklúbbur Akureyrar heldur áfram að vaxa og á sama tíma sækir sífellt meira ferðafólk svæðið heim, enda er gott golfsvæði ómissandi þáttur í ferðaþjónustu. Til að mæta þeirri þróun þarf að horfa til framtíðar og skipuleggja næstu skref af ábyrgð og framsýni. Það var því mikilvægt að hafinn var undirbúningur að framtíðarstækkun vallarins með losun jarðvegs á svæði innan marka félagsins í samstarfi við Akureyrarbæ.
Íþróttastarf félagsins hefur einnig verið afar öflugt. Barna- og unglingastarf GA hefur blómstrað undanfarin ár og árangurinn verið eftir því. Á þessu ári voru fimm kylfingar úr GA valdir í landslið GSÍ, sem er einn besti árangur í sögu félagsins og sjaldan eða aldrei hafa jafn margir kylfingar frá GA átt sæti í landsliðum á sama tíma.
Þessi framtíðarsýn og áform um áframhaldandi uppbyggingu voru kynnt flokkunum og ríkti almennt góður skilningur á mikilvægi verkefnisins fyrir Akureyri. Í kjölfarið hafa nokkur framboð sett áframhaldandi uppbyggingu á Jaðri inn í stefnumál sín, sem ber sannarlega að fagna. Heimsóknir flokkanna sköpuðu góðar umræður um starf félagsins, mikilvægi þess fyrir samfélagið og þau tækifæri sem felast í frekari uppbyggingu.
Það er alltaf ánægjulegt að taka á móti fólki sem sýnir starfi okkar áhuga og enn betra að fá tækifæri til að veita dýpri innsýn í þá hugsun og metnað sem liggur að baki starfseminni. Við leggjum ríka áherslu á öflugt íþrótta- og félagsstarf og fjölgun félagsmanna síðustu ár sýnir vel þann mikla vöxt sem golfíþróttin hefur tekið. Golf er nú orðin önnur fjölmennasta íþrótt landsins.
Á sama tíma þarf að horfa fram á veginn og byggja á skýrri framtíðarsýn. Við teljum að 9 holu stækkun á Jaðri sé afar skynsamlegt næsta skref og jafnframt hagkvæmasta leiðin til að mæta áframhaldandi vexti og þróun golfsins á Akureyri, bæði fyrir íbúa á öllum aldri sem og ferðafólk. Það er ánægjulegt að sjá framboð taka undir þessa sýn og setja áframhaldandi uppbyggingu á Jaðri inn í stefnumál sín. Nú er það í höndum Akureyringa að ákveða hvaða sýn fær stuðning í kosningunum á morgun, laugardaginn 16.maí.
