Tengi nýr samstarfsaðili GA

Nú nýverið var undirritaður samstarfssamningur milli GA og Tengis.

Tengi mun útvega GA allan þann búnað sem þarf í nýju aðstöðuna okkar í kjallaranum á Jaðri, gólfhita, sturtur, salerni og handlaugar, sem og búnað til þess að endurnýja salernin á efri hæð Jaðars og í ný salerni í Klöppum.

Stuðningur sem þessi gerir okkur kleift að gera enn betur og mun sú aðstaða sem kylfingum á Jaðri verður boðin upp á hin allra glæsilegasta.

Þökkum við Tengi kærlega fyrir veittan stuðning og hlökkum til samstarfsins.