Team Iceland til Kýpur

Björn Guðmundsson í Team Iceland á leið til Kýpur.

Staffan Johannson hefur valið níu leikmenn til að spila á Cyprus Ladies og Cyprus Men´s open. Spilað verður á Secret Valley GC. Stelpurnar byrja þann 15. april og strákarnir þann 18. Mótið er ekki talið meðal sterkustu móta í Evrópu mótaskránni og gefur okkar leikmönnum tækifæri á að spila um til verðlauna.

Miklir hitar og þurkar hafa verið á Kýpur undanfarnar vikurnar og vatn af skornum skammti. Það hefur haft áhrif á vökvun vallanna. Það má því búast við hörðum og hröðum velli á Kýpur og spennandi að sjá hvernig okkar fólki gengur að eiga við þær aðstæður.

Þeir sem taka þátt fyrir Íslands hönd eru:

Andri Már Óskarsson GHR
Axel Bóasson GK
Björn Guðmundsson GA
Guðjón Henning Hilmarsson GKG
Rúnar Arnórsson GK

Eygló Myrra Óskarsdóttir GKG
Heiða Guðnadóttir GS
Ragna Björk Ólafsdóttir GK
Valdís Þóra Jónsdóttir GL