Sveitir GA - dagur þrjú

Drengir 18 ára og yngri

Strákarnir unnu GR 2 - 1. Arnór Snær vann sinn leik 6/5. Kristján Benedikt vann sinn leik 3/2 en fjórmenningurinn tapaði sínum leik 5/4. Þetta þýðir bara eitt að strákarnir okkar í 18 ára og yngri eru ÍSLANDSMEISTARAR 2016 ! :)

Drengir 15 ára og yngri

GA-A tapaði í dag leik sínum gegn GM-A 2-1, Lárus Ingi vann sinn leik 2/1. Mikael Máni og Óskar Páll töpuðu fjórmenningnum 3/2 og Gunnar Aðalgeir sínum leik 6/5. GA-B tapaði sínum leik einnig 2-1 gegn GF/GEY/GHR, Starkaður vann leikinn vegna forfalla, Brimar og Björn töpuðu fjórmenningnum 4/2 og Skúli sínum leik 3/2.

Stúlkur 18 ára og yngri

Þær höfnuðu í 3. sæti ! :)

Eldri kylfingar 2.deild kvenna

Í dag voru stelpurnar okkar að spila við GVG þar sem að Halla Sif og Þórunn Anna unnu fjórmenninginn 2/0, en Ragnhildur tapaði sínum leik 7/6 og Unnur Elva sínum 3/1. Svo lokaniðurstaðan úr þessum leik var 2-1 tap og enduðu stelpurnar því í 4. sæti.

Eldri kylfingar 1.deild karla

Strákarnir unnu Nesklúbbinn 3-2 í dag. Vigfús og Leifur unnu fjórmenninginn 1/0, Þórhallur vann sinn leik 4/3 og Björgvin vann sinn leik 3/2. Það gekk þó ekki alveg nógu vel hjá Jón Þór og Jón Gunnari sem báðir töpuðu sínum leikjum 5/4. En strákarnir tóku 3. sætið !