Sveitakeppni öldunga karla fór fram um helgina

Nú um helgina spilaði sveit GA í sveitakeppni öldunga sem fram fór á golfvellinum á Öndverðarnesi.

Okkar menn stóðu sig mjög vel og voru ansi nálægt því að keppa til úrslita.

Það munaði einungis einum vinning sem gerði það að verkum að við spiluðum um 5 - 8 sæti í stað 1 - 4 sætis.

Sveit GA tapaði einungis einum leik og því virkilega góð frammistaða hjá okkar mönnum.