Súpukvöld GA kvenna

GA konur nú er komið að árlega súpukvöldinu okkar þar sem nú fer að líða að lokum þessarar leikvertíðar. Nú gerum við upp sumarið og sláum í gegn á golfvellinum og sýnum okkar bestu hliðar. Sýnum að við höfum nú eitthvað lært í sumar. J

Leiknar verða 9 holur(1-9). Mæting kl.17.00 og allar ræstar út á sama tíma kl. 17.30. Gjaldið er 2.500, súpa, sallat og golf. Borgað með pening!! J

Við borðum svo saman hjá meistara Vídalín eftir mótið og þar verða fjöldamörg verðlaun veitt t.d. lengsta drævið, nándarverðlaun, flestar sexur o.fl.

Hægt er að skrá sig hér að neðan, á skrifstofunni eða inn á golf.is. Síðasti skráningardagurinn er mánudagurinn 8. september.