Sunnudagsmótaröð barna og unglinga

Jóakim Elvin, Guðmundur Þór og Heimir Bjarni
Jóakim Elvin, Guðmundur Þór og Heimir Bjarni

Fjórða og jafnframt síðasta mót Sunnudagsmótaraðar barna og unglinga GA lauk í gær, en samtals tóku 41 keppandi þátt í mótunum í sumar.

Þessi mótaröð var sett upp af barna- og unglinganefnd GA í samráði við golfkennara.  Markmið mótanna voru að hvertja krakkana til að spila meira og jafnframt að fá foreldra með á völlinn. Fyrirkomulag mótanna var punktakeppni með forgjöf svo að allir krakkar eigi jafn mikla möguleika. Í sumar var keppt í fjórum flokkum en þar sem þessi elstu eru oftar en ekki upptekin að spila á öðrum mótum yfir sumarið höfum við hugsað okkur um að vera bara með tvo yngstu flokkana næsta sumar.

Allt fór þetta vel fram og lauk með hamborgaraveislu og verðlaunaafhendingu í gær sunnudaginn 19. september.

Verðlaun voru veitt fyrir 1 - 3 sæti í hverjum flokki fyrir sig og voru það 3 hringir af fjórum sem töldu.

Í flokki 15 - 18 ára
1. sæti  Kristófer Magni - 85
2. sæti Lana Sif        39
3. sæti Veigar           37

Í flokki 14 ára og yngri - 18 holur
1. sæti Heiðar Kató                         91
2. sæti Bryndís Eva                         74
3. sæti Arnar Freyr                          73

9 holur rauðir teigar
1. sæti Axel James                          56
2. sæti Mikael Máni                        53
3. sæti Askur Bragi                          49

9 holur gull teigar
1. sæti Jóakim Elvin         34
2. sæti Guðmundur Þór  27
3. sæti Heimir Bjarni        18

Við í barna og unglinganefnd þökkum krökkunum og foreldrum kærlega fyrir sumarið og bíðum spennt eftir því næsta.