Sumarleiga á golfbílum

Golfklúbbur Akureyrar  ætlar að bjóða kylfingum sem þurfa á golfbíl að halda að staðaldri í sínum golfleik, sumarleigu á golfbíl  hjá klúbbnum. Leigan tryggir kylfingum aðgang að golfbíl í allt sumar.  Boðið var upp á þessa þjónustu í fyrra og tókst hún vel og því höldum við henni áfram í sumar.

Kylfingar geta keypt kort sem þeir eru þá skráðir fyrir og þeir einir geta nýtt, korthöfum er þó sjálfsagt að bjóða öðrum kylfingum með sér í bílinn.  Það þarf að bóka bílana með dags fyrirvara og mun GA reyna að tryggja að ávallt sé bíll til staðar, þó sú staða geti komið upp að það þurfi að hliðra til rástímum ef margir bílar eru í útleigu viðkomandi dag.  Einhverja daga gæti sú staða komið upp að engir golfbílar séu til taks en GA mun eftir fremsta megni reyna að koma í veg fyrir að það gerist. 

 Golfbílar og golfhjól eru mikil fjárfesting og vill GA með þessi móti koma til móts við sína félaga þar sem sífellt fleiri eru farnir að notast við svona farartæki í sínum golfleik, m.a. vegna heilsubrests.  Með þessu þurfa kylfingar ekki að fara í fjárfestingu sjálfir ásamt því að þurfa ekki að hugsa um geymslu fyrir bílana eða hjólin sem og annað viðhald.

 Verðið fyrir sumarleigu á golfbíl er 70 þúsund krónur.

Hjónagjald, þar sem báðir aðilar geta verið skráðir fyrir bílnum og geta því notað hann í sitthvoru lagi er 100 þúsund krónur.

 Þeir kylfingar sem áhuga hafa á því að leigja sér bíl í sumar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Ágúst í síma 8577009 eða á agust@gagolf.is