Styrktarmót körfuknattleiksdeildar Þórs

Árlegt styrktarmót körfuknattleiksdeildar Þórs í golfi

Laugardaginn 3. september á Jaðarsvelli. Skráning fer fram á golfbox: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=3602147 Athugið að til að fá rástíma í mótið þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@gagolf.is eða hringja í 462-2974.

Leikið verður eftir texas scramble fyrirkomulagi, tveir og tveir saman í liði. Hámarksforgjöf hvers leikmanns er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur. Leikforgjöf liðs er reiknuð samanlögð vallarforgjöf beggja leikmanna deilt með 4. Hefðbundnar staðarreglur á velli.

Kylfingar skulu leika frá eftirfarandi teigum:

  • Karlar: Gulir
  • Konur: Rauðir
  • 14 ára og yngri: Rauðir
  • 70 ára og eldri: Rauðir

Fjöldi veglegra verðlauna

  • Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin.
  • Flott nándarverðlaun á öllum par 3 holunum ásamt skemmtilegum útfærslum á 3. og 16. braut.
  • Á 15. braut verða óvæntar móttökur á teig ásamt því að hægt verður að kaupa teighögg af lágforgjafarkylfingi frá unglingastarfi GA.
  • Verðmæti nándarverðlauna á 18. braut er yfir 100.000.-kr.
  • Hægt verður að kaupa aukabolta á 18. braut til að auka líkur á nándarverðlaunum.
  • Að auki verða fleiri skemmtileg verðlaun sem dreift verður á önnur sæti af handahófi.

Mótsgjald er 7.000 kr

Höfum gaman saman, verðlaun afhent að loknu móti eða nálgast þau hjá Jóhanni Sigurðssyni á sunnudag GSM: 848-0881.